logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2016-17

26/02/2016
Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2016-17 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar. 

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2016 fer fram frá 01. mars til 15. mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu (sjá nánar reglur um skiptingu skólasvæða á vef Mosfellsbæjarwww.mos.is).

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar eða koma úr einkaskólum þarf að fara fram fyrir 1. apríl.

Sérstök athygli er vakin á því, að umsóknarfrestur vegna náms í grunnskólum annarra sveitarfélaga en Mosfellsbæjar er til 1.apríl og skulu umsóknir berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar. Athygli er einnig vakin á því að nemendur með lögheimili í Mosfellsbæ er sækja nú þegar skóla í öðrum sveitarfélögum þurfa líka að sækja um fyrir 1. apríl, þar sem umsóknir endurnýjast ekki sjálfkrafa. 

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar. 


Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita ritarar grunnskólanna. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta jafnframt snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira