logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Námsefniskynningar og kynningarfundir

03/09/2015

Kynningarfundir fyrir foreldra og forráðamenn nemenda í Lágafellsskóla verða haldnir sem hér segir:

Mánudag 7. september kl. 08:15 - 09:30               6. - 10. bekkur

Föstudag 11. september kl. 08:15 - 09:30             2. - 5. bekkur

Mánudag 14. september kl. 17:30 - 21:00            1. bekkur

Morgunfundirnir hefjast í sal skólans með stuttu ávarpi skólastjóra.

Að kynningu lokinni munu umsjónarkennarar kynna skólastarf vetrarins í stofum sínum.

Boðið verður upp á gæslu fyrir nemendur í 2. - 4. bekk  meðan kynningarfundur stendur yfir. Sendar verða frekari upplýsingar um tilhögun gæslunnar.

Kennsla hefst kl. 10:00 í 2. - 7. bekk en kl. 09:55 í 8. - 10. bekk þann dag sem kynning fer fram hjá viðkomandi árgangi.

Foreldrar og forráðamenn nemenda í 1. bekk verða boðaðir bréfleiðis til kynningarfundar.

Foreldrar eru hvattir til að geyma bílinn heima og ganga þess í stað í skólann til að forðast bílastæðavandræði.

Stjórnendur Lágafellsskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira