Beint á leiðarkerfi vefsins
Lágafellsskóli

Markmið foreldrafélagsins

 

Markmið félagsins er að vinna að velferð nemenda skólans, samvinnu heimila og skóla og almennum framförum í skólastarfi. Félagið vinnur að því að efla kynni foreldra innbyrðis og styrkja menningar- og félagslíf innan skólans. Einnig sér það um umræðu og fræðslufundi um uppeldis- og skólamál í samráði við skólann. Setur fram óskir og tillögur um breytingar. Félagið á einn fulltrúa í fræðslunefnd Mosfellsbæjar og hefur einn fulltrúi þess heimild til að sitja kennarafundi. Fjórir fulltrúar eru valdir úr hverjum bekk og skipa þeir fulltrúaráð bekkja. Foreldrafulltrúar úr hverjum árgangi kjósa einn úr sínum hópi til að sitja í stjórn foreldrafélagsins.

 

 

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Mynd

Samvera - Samvinna - Samkennd