Mosforeldrar
Mosforeldrar- svæðisráð foreldra barna í leik- og grunnskólum í Mosfellsbæ.
Öflugur málsvari foreldra,
aukið samstarf við bæjaryfirvöld
Foreldrar leik- og grunnskólabarna í Mosfellsbæ settu á fót samstarfsvettvanginn Mosforeldra árið 2007 til að vinna að sameiginlegum málefnum nemenda í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins. Í ráðinu eiga nú sæti 6 fulltrúar.
Mosforeldrar eða svæðisráð foreldra í Mosfellsbæ er samstarfsvettvangur foreldrafélaga í leik- og grunnskólum bæjarins og er málsvari leik- og grunnskólanemenda í sveitarfélaginu. Tilgangur svæðisráðsins er að styrkja rödd foreldra sem hagsmunahóps í sveitarfélaginu og sameina krafta þeirra til góðra verka í skólamálum. Ráðið vinnur að sameiginlegum málefnum nemenda í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins og foreldra þeirra, veitir fræðslunefnd umsagnir um ýmis mál er varða starfsemi leik- og grunnskóla og er bæjaryfirvöldum til aðstoðar og ráðuneytis um skóla- og fjölskyldumál.
Mosforeldrar/svæðisráðið er tengiliður foreldra á svæðinu við Heimili og skóla, landssamtök foreldra og tilnefnir fulltrúa til setu í fulltrúaráði samtakanna. Jafnframt kýs ráðið sér fastan fulltrúa til setu sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt á fundum fræðslunefndar sveitarfélagsins eins og mælt er fyrir í 6. grein grunnskólalaga.
Foreldrafélög eru nú lögbundin í grunnskólum og foreldrar eiga fulltrúa í skólaráðum sem komu til með grunnskólalögum sem tóku gildi s.l. sumar. Í leikskólum starfa foreldraráð og eru svæðisráðin samráðsvettvangur þeirra sem kosnir eru til trúnaðarstarfa í foreldrafélögum og foreldraráðum.
Meginmarkmið Mosforeldra er að standa vörð um hag barna á leik- og grunnskólaaldri.
Formaður Mosforeldra er Elín Rósa Finnbogadóttir og hægt er að senda erindi á tölvupóstfangið mosforeldrar@mos.is
Fundir eru haldnir reglulega þar sem mörkuð er stefna um þau verkefni sem Mosforeldrar vinna að.
Í svæðisráðinu eiga eftirtaldir fulltrúar sæti:
| Lágafellsskóli: | Elín Rósa Finnbogadóttir og Margrét Pálsdóttir |
| Varmárskóli: |
Gunnar Haugen og Inga Lilja Lárusdóttir |
| Krikaskóli: | Íris Björg Kristjánsdóttir |
| Fulltrúi leikskóla Mosfellsbæjar: | Svanhildur Pétursdóttir |








