Tilkynnt um dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10.
Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 er kveðið á um að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Jafnframt er kveðið á um að nemendur 10. bekkjar skuli á fyrri hluta skólaársins þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.
Tilgangur samræmdra könnunarprófa í grunnskólum er m.a. að athuga, eftir því sem kostur er, að hvaða marki námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð, vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur og veita nemendum, foreldrum og skólum upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda.
Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2011 verða sem hér segir:
10. bekkur
- Íslenska mánudagur 19. september kl. 9.00-12.00
- Enska þriðjudagur 20. september kl. 9.00-12.00
- Stærðfræði miðvikudagur 21. september kl. 9.00-12.00
4. og 7. bekkur
- Lesskimun í 4.bekk mánudaginn 19.sep. kl. 12-13:20
- Íslenska fimmtudagur 22. september kl. 9.00-12.00
- Stærðfræði föstudagur 23. september kl. 9.00-12.00
Ákvörðun um prófdaga samræmdra könnunarprófa haustið 2011 var tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa er væntanleg innan tíðar og verður aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins.
Gert verður eitt 20 mínútna hlé á próftímanum og verða upplýsingar um nákvæmari tímasetningar fyrir hvern árgang að finna í framkvæmdahefti og á vefsíðu Námsmatsstofnunar þegar nær dregur prófunum ( http://www.namsmat.is/ ).
Leit
Mynd








