Afmælisboð
Þegar boðið er í afmæli
Afmæli eru merkisviðburðir í lífi barna og vilja þau gjarnan fagna með bekkjar-systkinum sínum. Skólinn verður þannig vettvangur þar sem boðið er til veislu. Oft á tíðum myndast mikil spenna í kringum þessar stórhátíðir, sem tengist því hverjum verður boðið og hverjum ekki. Það er alltaf sárt að sitja uppi með þá tilfinningu að vera skilinn útundan.
Því viljum við benda foreldrum á að við leyfum aðeins að boskortum sé dreift ef öllum drengjum/stúlkum í bekknum er boðið.
Skv. ákvörðun Skólaráðs frá 21/1 2009
Leit
Mynd








